 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
ICELAND
Fræðsludeild Þjóðleikhússins í sókn
Fræðsludeild Þjóðleikhússins er í
örum vexti. Henni hefur verið falið að sinna barna- og
unglingastarfi Þjóðleikhússins. Hún vinnur að því að örva áhuga
yngri leikhúsgesta á leiklist, efla samstarf Þjóðleikhússins við
skólana, miðla fróðleik og hvetja til umræðu um leikhús.
Fræðsludeildin hefur aðsetur í gamla Hæstaréttarhúsinu við
Lindargötu, eða Dómhúsinu svokallaða, og hefur þar meðal
annars afnot af Dómsalnum fyrir ýmiskonar uppákomur.
Það sem af er leikárinu hefur verið
lagt kapp á að efla tengsl Þjóðleikhússins við skólana í
landinu. Leikhúsið hefur verið með kynningar í skólum og hér hefur
verið tekið á móti hundruðum barna á skólatíma og þeim kynnt
starfsemi leikhússins. Einnig hefur verið efnt til skólasýninga með
lækkuðu miðaverði og umræðum eftir sýningu á litlu sviðunum á
þriðjudögum og miðvikudögum, eins og fjallað er um á síðunni
hér að framan. Fræðsludeildin stóð að sýningu á aðventuleikritinu
Leitinni að jólunum sem fékk frábærar viðtökur, bæði hjá
skólum, leikskólum og almenningi. Í þessari sýningu ferðuðust ungir
leikhúsgestir um leikhúsið í fylgd leikara og hljóðfæraleikara
og sáuleikþætti um jólin í gamla daga og í nútímanum. Mjög góð
þátttaka hefur verið í vinnusmiðjum fræðsludeildarinnar sem haldnar
eru einu sinni í mánuði. Um tuttugu kennarar úr ólíkum skólum taka
þátt í vinnusmiðjunum og hljóta þar þjálfun í að vinna með
aðferðir leikhússins í skólastarfinu.
Fræðsludeildin stendur fyrir
ýmiskonar námskeiðahaldi og fékk meðal annars snemma á leikárinu
kanadíska leikhúsmanninn
Shawn Kinley til að halda námskeið í spunatækni og hópefli.
Námskeiðið var mjög vel sótt, bæði af leikhúsfólki, kennurum og öðru
áhugafólki um eiklist. Deildin stendur fyrir
ýmsum
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|

|
|
uppákomum í
Dómsalnum. l Má þar nefna Réttarhöldin og námskeið sem
haldið verður í tengslum við sýningu Þjóðleikhússins á Pétri
Gaut síðar á leikárinu. Hvort tveggja er kynnt á öðrum stað í
tímaritinu. Starfsmenn fræðsludeildarinnar eru Þórhallur
Sigurðsson leikari og leikstjóri, sem er forstöðumaður
deildarinnar, og Ingibjörg Þórisdóttir leikkona og dramatúrgur,
verkefnastjóri fræðsludeildar. Þau eru boðin og búin að veita
upplýsingar og taka á móti hugmyndum. Netfang deildarinnar er
fraedsla@ leikhusid.is og síminn er 585 1267. |
|
|